Kastað til bata um Hvítasunnuhelgina.
Um Hvítasunnuhelgina var hin árlega ferð í Langá á Mýrum undir formerkjum verkefnisins „Kastað til bata“. Verkefnið er endurhæfingarverkefni á vegum Krabbameinsfélagsins, Brjóstaheilla – Samhjálpar kvenna, og styrktaraðilum. Stangveiðifélag Reykjavíkur er stoltur styrktaraðili verkefnisins og Kvennanefnd SVFR kemur að þátttöku fyrir hönd félagsins. Verkefnið hefur verið haldið frá árinu 2010 og byggt á bandarískri fyrirmynd „Casting for recovery“ og er hugsað sem endurhæfing fyrir konur …