Stangaveiði er skemmtileg og fjölskylduvæn íþrótt fyrir alla. Hjá okkur áttu möguleika á að starfa með og læra af skemmtilegum og fjölbreyttum hópi fólkis. Í boði er gefandi félagsstarf ásam veiðileyfum á félagsverði í fjölbreyttum ám og vötnum. Raunar er úrvalið svo mikið að enginn einn aðili annar á landinu býður upp á jafn fjölbreytta valkosti eins og SVFR. Félagið býður býður einnig uppá  öflugt fræðslustarf og í gegnum barna- og unglingastarfið hafa ótal margir veiðimenn stigið sín fyrstu skref í veiðinni.

Ávinningurinn á því að gerast félagi er m.a.:

  • Taka þátt í skemmtilegu og uppbyggilegu félagsstarfi
  • Þú getur keypt hagstæð veiðileyfi á félagsverði í fjölmörgum lax- og silungsveiðiám
  • Þér stendur til boða að taka þátt í forgangsútlutun veiðileyfa í Elliðaánum og öðrum ársvæðum
  • Átt möguleika á að kaupa Veiðikortið með félagsafslætti
  • Færð fría áskrift að Veiðimanninn sem kemur út tvisvar sinnum út á ári, í maí og desember.
  • Aðgangur að skemmti- og kynningarkvöldum félagsins