Ungmennastarf SVFR
Stangaveiðifélag Reykjavíkur er stolt af því að bjóða upp á öflugt félagsstarf fyrir ungmenni 19 ára og yngri. Félagsárið er frá 1. nóvember til 31. október og aðildin kostar 5.200 kr.
Hægt er að skrá sig í félagið HÉR með því að kaupa aðild fyrir 19 ára og yngri.
Frá mars til september er boðið upp á skemmtilega og fræðandi viðburði í þeim tilgangi að efla áhuga ungu kynslóðarinnar á stangveiðisportinu. Hápunktur sumarsins er án efa ungmennadagar Elliðaánna en vinsældir þeirra fara vaxandi ár hvert.
ATH. Fullt er í vorveiðina í Korpu 25. apríl og 3. maí. Póstur hefur verið sendur á þá sem sóttu um 25. apríl og þeim boðið að veiða 2. maí í Leirvogsá í staðinn.
Hér að neðan má sjá viðburðadagatal tímabilsins 2026.
| Dags | Viðburður | Athugasemd |
| 14. mars | Fluguhnýtingar í Rimaskóla. | |
| 25. apríl | Vorveiði í Korpu. | Uppbókað. |
| 3. maí | Vorveiði í Korpu. | Uppbókað. |
| 2. maí | Vorveiði í Leirvogsá. | Uppbókað. |
| 3. maí | Vorveiði í Leirvogsá. | Uppbókað. |
| 9. maí | Flugukastnámskeið 10-19 ára. | Verð 10.000 kr. Skráning HÉR. |
| 10. maí | Flugukastnámskeið 10-19 ára. | Verð 10.000 kr. Skráning HÉR. |
| 22. maí | Vorveiði - Klettaskóli. | Elliðaár. |
| 29. maí | Vorveiði - Hitt Húsið. | Elliðaár. |
| 5. júní | Vorveiði - Ás styrktarfélag. | Elliðaár. |
| 12. júní | Vorveiði - Einstök börn. | Elliðaár. |
| 5. júlí | Ungmennadagar Elliðaánna. #1 | Skráning hefst um miðjan maí. |
| 6. júlí | Ungmennadagar Elliðaánna. #2 | Skráning hefst um miðjan maí. |
| 9. ágúst | Ungmennadagar Elliðaánna. #3 | Skráning hefst um miðjan maí. |
| 10. ágúst | Ungmennadagar Elliðaánna. #4 | Skráning hefst um miðjan maí. |
| 19. ágúst | Veiðidagur í Langá fyrir menntaskólaaldur. | Auglýst nánar í maí. |
| Sept | Haustveiði í Leirvogsá. | Dagsetningar óljósar. |