By admin

Útdráttur fyrir Elliðaár á fimmtudagskvöldið

Það er loksins að koma að því að dregið verði úr innsendum umsóknum um veiðileyfi í Elliðaánum á komandi veiðisumri. Útdráttur fer fram í húsakynnum SVFR að Rafstöðvarvegi 14, fimmtudagskvöldið 18. janúar kl. 20.00. Áhugasömum er boðið að koma og fylgjast með en einnig verður fjallað ítarlega um útdráttinn á vef SVFR og á Facebook-síðu félagsins eftir …

Lesa meira Útdráttur fyrir Elliðaár á fimmtudagskvöldið

By admin

Verðlaunamynd Veiðimannsins 2017

Jakob Sindri Þórsson krækti í þessa flottu bleikju í þjóðgarðinum á Þingvöllum en  þar veitir Veiðikortið – sem SVFR á helmingshlut í – veiðimönnum aðgang að spennandi veiðilendum. Mamma Jakobs, Ragnheiður Traustadóttir, tók myndina en við gefum honum orðið. „Mamma tók þessa skemmtilegu mynd sem ég glímdi við í þjóðgarðinum nærri Arnarfelli í byrjun ágúst. …

Lesa meira Verðlaunamynd Veiðimannsins 2017

By admin

Nýtt ár

Við vonum svo sannarlega að félagsmenn okkar og fjölskyldur þeirra hafi notið hátíðanna og haft það gott. Það er búið að vera mikið um að vera á skrifstofunni undanfarna daga þar sem umsóknarfrestur fyrir félagsúthlutun rann út á þriðjudagskvöldið og undirbúningur fyrir úthlutun hófst strax í kjölfarið. Við munum gera okkar allra besta að hraða …

Lesa meira Nýtt ár

By admin

Umsóknarfrestur rennur úr klukkan 23:59

Á sama tíma og við óskum öllum félagsmönnum og viðskiptavinum Stangaveiðifélags Reykjavíkur gleðilegs nýs árs, minnum við á að umsóknarfrestur vegna félagsúthlutunar rennur út á miðnætti í kvöld 2. janúar. Ef einhverjir félagsmenn eru í vanda við að senda inn umsóknir, þá endilega sendið okkur tölvupóst með kennitölu og umbeðnum dögum á svfr@svfr.is fyrir klukkan 23:50 …

Lesa meira Umsóknarfrestur rennur úr klukkan 23:59

By admin

Gleðileg Jól

Stangaveiðifélag Reykjavíkur óskar félagsmönnum sínum, fjölskyldum þeirra og veiðimönnum öllum gleðilegra jóla og fengsæls komandi árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Opnunartími skrifstofu SVFR yfir hátíðirnar er sem hér segir: 27. desember – 12:00-16:0028. desember – 12:00-16:0029. desember – LOKAÐ Opnum aftur 2. janúar.

Lesa meira Gleðileg Jól

By admin

Veiðimaðurinn er kominn út

Vetrarblað Veiðimannsins er komið út og er á leið til félagsmanna sem geta látið sig dreyma um komandi veiðisumar yfir hátíðirnar á meðan þeir drekka í sig veiðisögur og fróðleik. Efnið er fjölbreytt að vanda en í blaðinu er m.a. veiðistaðalýsing á Straumfjarðará sem SVFR tryggði sér á haustdögum og mikill fengur er að. Veiðimaðurinn …

Lesa meira Veiðimaðurinn er kominn út