Veiðimaðurinn er kominn út

Vetrarblað Veiðimannsins er komið út og er á leið til félagsmanna sem geta látið sig dreyma um komandi veiðisumar yfir hátíðirnar á meðan þeir drekka í sig veiðisögur og fróðleik.

Efnið er fjölbreytt að vanda en í blaðinu er m.a. veiðistaðalýsing á Straumfjarðará sem SVFR tryggði sér á haustdögum og mikill fengur er að. Veiðimaðurinn rýnir í veiðidagbækur Jóns G. Baldvinssonar, fyrrverandi formanns félagsins en hann skráði niður fyrstu þúsund laxana sem hann veiddi! Urriðaveiðin fyrir norðan er krufin, Veiðimaðurinn kynnir sér söguna af Frigga, bregður sér á söguslóð á bökkum Elliðaánna og ræðir við sprækan vatnaveiðimann sem kann best við sig upp á heiðum að kanna ókunn lönd.

Síðast en ekki síst er verðlaunamynd Veiðimannsins frá liðnu sumri birt í blaðinu en höfundur hennar fær 50 þúsund krónur upp í veiðileyfi næsta sumars hjá SVFR.

Teikninguna á forsíðunni á Ingólfur Örn Björgvinsson SVFR-félagi og stórveiðimaður.

Vetrarblað Veiðimannsins er nr. 205 en það hefur komið út frá árinu 1940 og frætt og kætt fjölmargar kynslóðir veiðimanna í áratugi.

Söluskránni fylgir glæsileg flóðatafla sem sýnir flóð og fjöru næsta sumars á myndrænan hátt og hvenær er stórstreymt. Sannkölluð stofuprýði á heimili hvers veiðimanns.

By admin Fréttir