Útdráttur fyrir Elliðaár á fimmtudagskvöldið

Það er loksins að koma að því að dregið verði úr innsendum umsóknum um veiðileyfi í Elliðaánum á komandi veiðisumri. Útdráttur fer fram í húsakynnum SVFR að Rafstöðvarvegi 14, fimmtudagskvöldið 18. janúar kl. 20.00.

Áhugasömum er boðið að koma og fylgjast með en einnig verður fjallað ítarlega um útdráttinn á vef SVFR og á Facebook-síðu félagsins eftir því sem honum vindur fram.

Mikill áhugi er meðal félagsmanna SVFR á að veiða í Elliðaánum enda hefur veiðin undanfarin ár verið góð. Segja má að í Elliðaánum séu félagsmenn á heimavelli enda var félagið stofnað árið 1939 utan um leigu ánna og þar hafa fjölmargir veiðimenn tekið sín fyrstu skref í laxveiðinni – lært hvernig á að kasta, lesa vatn og krækja í laxa. Barna- og unglingadagar SVFR við Elliðaárnar eru t.a.m. lykilþáttur í fræðslustarfi félagsins.

Eins og við var að búast var töluverð umframeftirspurn eftir veiðileyfum í Elliðanum næsta sumar. Vegna þessa var brugðið á það ráð að láta tölvu sjá um útdrátt leyfa líkt og hefur gefist vel undanfarin ár. Félagsmenn SVFR sóttu í úthlutun um tiltekna viku sem þeir helst vilja veiða í og á fimmtudaginn kemur í ljós hverjir detta í lukkupottinn. Umsóknir þeirra sem ekki fá úthlutað leyfum fara í pott og verður dregið úr honum um lausa daga sem eftir standa. Fari svo að einhverir dagar gangi ekki út verða þeir boðnir til sölu í vefsölu félagsins.

Úthlutanir á öðrum svæðum félagsins eru í fullum gangi og ættu flest svæði að klárast í þessari viku.

Stjórn SVFR óskar félagsmönnum góðs gengis í drættinum og gleðilegs veiðisumars.

By admin Fréttir