Skýrsla stjórnar SVFR 2024
Við hvetjum félagsmenn eindregið til að kynna sér skýrslu stjórnar fyrir árið 2024 sem sjá má hér að neðan á myndrænu formi. Með kveðju, SVFR
Við hvetjum félagsmenn eindregið til að kynna sér skýrslu stjórnar fyrir árið 2024 sem sjá má hér að neðan á myndrænu formi. Með kveðju, SVFR
Það gleður okkur að tilkynna að barna- og unglingastarfið hefst á á morgun, 11. mars, í Rimaskóla í Grafarvogi þar sem boðið verður upp á kennslu og góð ráð í fluguhnýtingum. Þetta er fyrsti hittingurinn í vetur en framundan er spennandi dagskrá á næstu vikum og mánuðum sem sjá má hér að neðan. Viðburðadagatal barna- …
Árnefnd Langár óskar eftir öflugum liðsauka í starfandi nefnd sína á nýju ári. Um er að ræða fjögur laus sæti í tólf manna nefnd. Umsækjendur þurfa ekki að búa yfir neinum sérstökum hæfileikum öðrum en dugnaði og vilja til að sinna sjálfboðastarfi í þágu félagsins. Árnefndarvinnan felst m.a. í almennri viðhaldsvinnu við Langárbyrgi, garðvinnu og …
Stangaveiðifélag Reykjavíkur óskar eftir fimm áhugasömum og kraftmiklum félagsmönnum í nýja árnefnd Gufudalsár sem skipuð verður á næstu vikum. Umsækjendur þurfa ekki að búa yfir neinum sérstökum hæfileikum öðrum en dugnaði og vilja til að sinna sjálfboðastarfi í þágu félagsins. Árnefndir SVFR eru gífurlega mikilvægur hlekkur í félagsstarfinu og sinna þróttmiklu og óeigingjörnu starfi á …
Nú fer hver að verða síðastur að sækja um í úthlutuninni en umsóknarfresti lýkur á miðnætti annað kvöld – 31. desember. Við hvetjum þá sem ekki eru búnir að sækja um að drífa í því við fyrsta tækifæri. Starfsfólk skrifstofu verður félagsmönnum til halds og trausts í dag, 30. desember, en hægt er að ná …
Stangaveiðifélag Reykjavíkur óskar félagsmönnum sínum, fjölskyldum þeirra og veiðimönnum öllum nær og fjær gleðilegrar hátíðar og fengsæls komandi árs með þökk fyrir samskiptin og samveruna á árinu sem er að líða. Skrifstofan verður lokuð yfir hátíðirnar en opnar aftur á nýju ári, föstudaginn 3. janúar. Þar sem úthlutun er í fullum gangi verðum við á …
Veiðimaðurinn, málgagn Stangaveiðifélags Reykjavíkur, er nú kominn úr prentun og farinn í dreifingu til félagsmanna. Blaðið er fjölbreytt að vanda. Má þar nefna umfjöllun um Vatnsdalsá í Vatnsfirði en eins og margir vita hefur SVFR gert samning um sölu veiðileyfa í ána næsta sumar. „Skýrsla staðarhaldara í Langá” er einkar fróðleg lesning eftir Kristján Friðriksson, sem …
Úthlutun 2025 er hafin! Við höfum opnað fyrir umsóknir vegna úthlutunar veiðileyfa 2025 og því tilvalið að skoða fjölbreytt úrval veiðileyfa og sækja um. Samhliða kynnum við nýja söluskrá SVFR en hún kemur einnig í prentaðri útgáfu til félagsmanna sem fylgirit með Veiðimannum sem fer í póst á næstu dögum. Til að sækja um og/eða …
Við kynnum breytt fyrirkomulag varðandi Korpu. Áin verður seld í hálfum dögum líkt og Elliðaárnar og veiðisvæðið verður frá ós upp að Lambhagavegi. Fyrirhugað er að selja svæðið frá Lambhagavegi upp að Hafravatni sér. Ástæðan fyrir þessum breytingum er að efra svæðið er afar lítið veitt en geymir töluvert af silungi og þegar líður á …
Opnað hefur verið fyrir endurbókanir fyrir veiðitímabilið 2025 en mikilvægt er að fá staðfestingu frá þér sem fyrst, eða í síðasta lagi þriðjudaginn 15. október, hafir þú hug á að endurbóka þína daga. Athugið að eingöngu er tekið á móti endurbókunum í gegnum svfr.is/endurbokun Ársvæði í endurbókun eru sem hér segir: Flekkudalsá Haukadalsá 30.6-1.9 Langá Langá …