Ertu til er Langá kallar á þig?

Árnefnd Langár óskar eftir öflugum liðsauka í starfandi nefnd sína á nýju ári. Um er að ræða fjögur laus sæti í tólf manna nefnd. Umsækjendur þurfa ekki að búa yfir neinum sérstökum hæfileikum öðrum en dugnaði og vilja til að sinna sjálfboðastarfi í þágu félagsins.

Árnefndarvinnan felst m.a. í almennri viðhaldsvinnu við Langárbyrgi, garðvinnu og vinnu við að halda veiðistöðum í lagi, auk annarra verka er upp koma hverju sinni. Umsækjendur þurfa að geta unnið nokkra daga á ári upp í Langá við ofangreind verkefni en mest er um vinnu í maí og byrjun júní þó vinnudagar geti vissulega komið upp á öðrum tímum.

Árnefndir SVFR eru gífurlega mikilvægur hlekkur í félagsstarfinu og sinna þróttmiklu og óeigingjörnu starfi á öllum þeim ársvæðum sem félagið hefur innan sinna banda en segja má að árnefndirnar séu eins konar umsjónaraðilar hvers ársvæðis fyrir sig. Verkefnin eru eins misjöfn og þau eru mörg en öll hafa þau það að leiðarljósi að sjá til þess að ársvæðið taki sem best á móti veiðimönnum á ári hverju.

Umsóknarfrestur er til og með mánudagsins 10. febrúar nk. 

Smelltu hér til að senda inn umsókn

By SVFR ritstjórn Fréttir Langá