Ragnheiður nýr formaður SVFR og sjálfkjörið í stjórn.

Ragnheiður Thorsteinsson tekur við formennsku í SVFR á næsta aðalfundi félagsins, þar sem hún verður ein í framboði til formannsembættisins. Ragnheiði þekkja félagsmenn vel, enda hefur hún setið í samtals 10 ár í stjórninni, fyrst á árunum 2011-2017 og síðan frá 2019.

Í framboðskynningu segist Ragnheiður hafa lifað Stangó-tímana tvenna, bæði góð ár og mögur, og reynslan af hvoru tveggja sé dýrmæt. Þá reynslu vill hún nýta til hagsbóta fyrir félagsmenn og tryggja að SVFR verði áfram bakbeinið í íslensku veiðisamfélagi.

Konur í fyrsta sinn meirihluti stjórnar

Lögum samkvæmt stóð til að kjósa þrjá stjórnarmenn til næstu tveggja ára á aðalfundinum 23. febrúar. Þess reynist þó ekki þörf þar sem framboð til stjórnar voru jafnmörg og því er sjálfkjörið í stjórn. Lára Kristjánsdóttir gaf ekki kost á sér til endurkjörs en Helga Jónsdóttir situr áfram. Brynja Gunnarsdóttir og Dögg Hjaltalín koma nýjar inn í stjórn. Þar sitja fyrir Halldór Jörgensson, Hrannar Pétursson og Trausti Hafliðason. Í þessu felast söguleg tíðindi, því í fyrsta sinn verður stjórn SVFR skipuð fleiri konum en körlum. Þá verður Ragnheiður fyrst kvenna til að gegna formennsku í SVFR.

By Ingimundur Bergsson Fréttir