Góðan daginn.
Nú er sumarið að bresta á og veiðimenn líta björtum augum á komandi tíma.
Vorveiðin er komin á ágætis ról sums staðar, vötnin fara að taka við sér og vonandi fáum við gott veiðisumar.
Hjá SVFR er til fjölbreytt úrval af veiðileyfum fyrir sumarið, bæði í silungsveiði og laxveiði.
Það styttist í opnun urriðasvæðanna fyrir norðan, Laxá í Aðaldal- Miðsvæðið opnar í byrjun maí, það getur oft verið frábær urriðaveiði í maí fyrir norðan.
Hér má sjá laus holl í maí í Laxá í Aðaldal – Miðsvæðið: Miðsvæðið laus holl
Upplýsingar um svæðið: Laxá í Aðaldal – Miðsvæðið
Laxárdalurinn opnar 30 maí, stórkostlegt urriðaveiðisvæði og frábært hús í stórkostlegu umhverfi.
Nokkrar stangir enn lausar í Caddis hollin víðfrægu, ef þú vilt læra á Dalinn þá er þetta fljótvirkasta og besta leiðin til þess, undir handleiðslu Caddis bræðranna.
Hér má sjá lausar stangir í Laxárdalnum í júní: Lausar stangir í Laxárdal í júní
Upplýsingar um svæðið: Laxárdalur
Brúará er sívinsæll og ódýr kostur fyrir silungsveiðimenn, þeir sem ná tökum á Brúará taka miklu ástfóstri við hana og oft er hægt að gera dúndurveiði af fallegri bleikju þar.
Hér má sjá lausa daga í Brúará í apríl og maí: Laus leyfi í Brúará í apríl og maí
Upplýsingar um svæðið: Brúará