Veisla í Varmá

Sjóbirtingurinn er mættur í Varmá og í töluverðu magni!

Bjartur Ari var við veiðar í gær með vini sínum Guðmundi Kára og voru þeir varir við mikið magn af fiski á flestum svæðum. Sjóbirtingarnir voru eins og tundurskeyti þegar þeir komu á fullri ferð upp ánna, þeir voru varir við göngurnar á bökkum en einnig sáu þeir fiska ganga fyrir ofan þjóðveg.

Þeir félagar fengu fimm sjóbirtinga og misstu eitthvað svipað, einn af þeim misstu voru víst algjör skepna sem var aldrei undir 80cm! Heitustu staðirnir voru Bakkar, Gamla Stífla, Teljarinn og síðan breiðan fyrir neðan rörið neðan við Reykjafoss. Flestir fiskarnir tóku litlar straumflugur en sá stærsti tók svartan Dýrbít og mældist birtingurinn 65cm og alveg hnöttóttur!

Bjartur segir að hann hafi aldrei séð jafn mikið af fiski í ánni og núna, göngurnar sem komu upp voru rosalegar og hylurinn bókstaflega lyftist þegar þær straujuðu í gegn. Það er án efa kominn fiskur upp fyrir Reykjafoss og er það svæði talið það skemmtilegasta í ánni. Við viljum benda þeim á sem eru að fara í Varmá að loka öllum hliðum á eftir sér.

Töluvert er laust í Varmá og má finna leyfi hér.