Langá komin yfir 1000 laxa

Langá hefur verið á ágætis róli síðustu daga en þúsundasti laxinn kom á land seinnipartinn í gær. Þessi fallega hrygna tók svartan Frances micro cone í veiðistaðnum Langasjó, veiðimaðurinn er Guðmundur Jörundsson.

Í fyrra voru lokatölur 832 laxar þannig það er góð bæting í veiðinni í ár, veitt er í Langá til 25. september og munu lokatölur vera rúmlega 200 löxum hærri í ár.

Við viljum minna á að við erum búin að setja endurbókanir fyrir 2023 í loftið, formið má nálgast hér.

By SVFR ritstjórn Fréttir