Glæsilegur maríulax úr Elliðaánum

Síðasta laugardag komu 15 laxar á land í Elliðaánum, einn af þeim var maríulax og hann var ekki af minni gerðinni. Hann mældist 78cm og tók fluguna Tryggva Garðar (tvíkrækja #14 eftir Pétur Steingrímsson) í Hrauninu.

Veiðikonan heitir Arna Sif Jónsdóttir og er 11 ára, hún er dóttir Jóns Þórs formanns SVFR sem sagði að hún gerði allt sjálf enda er hún með veiðimennskuna í blóðinu. Hún gerði sér lítið fyrir og landaði öðrum fallegum laxi í Höfuðhyl stuttu eftir að hafa landað maríulaxinum, hann tók líka Tryggva Garðar #14.

Við óskum Örnu Sif til hamingju með þennan glæsilega fisk, hún á svo sannarlega framtíðina fyrir sér í veiðinni!