Fréttir úr Varmá

Varmáin hefur verið að gefa fiska þrátt fyrir erfiðar aðstæður síðustu vikur vegna leysinga. Við fengum fréttaskeyti frá Brjáni Guðna sem var þarna ásamt félögum á sumardaginn fyrsta. Aðstæður voru krefjandi og mikið vatn og var áin búin að vera í flóðum þannig að það flæddi yfir bakka. Þeir lönduðu 10 fiskum á hitt og þetta svo sem Green Butt, Silver Wilkinsons og Black ghost, púpur voru einnig að gefa vissulega. Þarna voru menn að prófa ýmislegt eins og flugnaval gefur til kynna. Veiðistaðirnir sem gáfu voru frá 1-16 en undir kvöldið var mikið um líf á Stöðvarbreiðunni.

Varmáin er núna komin í gott veiðivatn og ætti að koma mikill hvellur í veiðina enda hefur vorið verið frekar seint á ferðinni þetta árið.

Samkvæmt veðurspá eru hlýjindi framundan og er t.a.m spáð 11 stiga hita á miðvikudaginn. Núna fer lífríkið í gang af fullum krafti og skemmtilegir tímar framundan.

Hægt er að nálgast veiðileyfi á vefsölunni hér