Félagaúthlutun 2021 er hafin, þetta þarftu að vita!

Félagaúthlutun SVFR er hafin. Það ríkir ávallt mikil spenna við upphaf félagaúthlutunar samhliða útgáfu söluskrár SVFR. Má með sanni segja fyrir veiðitímabilið 2021 er fjölbreytt úrval spennandi veiðileyfa í boði. Í söluskránni er að finna yfirlit yfir leyfin, hvað þau kosta ásamt gagnlegri flóðatöflu.

Eingöngu félagar í SVFR sem hafa greitt félagsgjöldin fyrir 2021 eiga rétt á að taka þátt í félagaútlutuninni. Það margborgar sig að taka þátt því að félagaúthlutun lokinni hækka veiðileyfin um 5%.

Vert er að hafa í huga:

  • Félagaúthlutuninni lýkur á miðnætti 18.desember.
  • Ekki þarf A – B og C leyfi fyrir umsóknir í Elliðaárnar, hvort sem fyrir laxveiðitímabilið eða vorveiðina.
  • Skylduþrif eru í Andakílsá,Gljúfurá, Flekkudalsá, Laugardalsá.og Sandá. Sérstakur reikningur verður sendur fyrir þá þjónustu.
  • Reikningar verða gefnir út í byrjun janúar og er eindagi reikninga 15 dögum eftir útgáfu. Sé óskað eftir greiðsluskiptingu verður boðið uppá að skipta greiðslum á greiðslukort.
  • Staðfestingapóstur berst með öllum mótteknum umsóknum!
  • SPAM – athugið að algent er að staðfestingar á umsóknum geta farið í ruslpóst.
  • Veiðileyfi hækka um 5% eftir að félagaúthlutun líkur

Dagar til vara
Athugið vel að þegar sótt er um daga til vara, þá skal það aðeins gert ef dagar til vara eru jafn góðir þeim dögum sem sótt er um fyrir umsækjanda. Við úthlutun er reynt að raða umsóknum niður og til að lágmarka útdrætti og auka möguleika umsækjanda er góður kostur að merkja við daga til vara.

Hópumsókn
Það er nægjanlegt að senda inn eina hópumsókn en þá þarf að skrá einn félagsmann á stöng. Allir umsækjendur þurfa að vera félagar í SVFR og búnir að greiða félagsgjaldið fyrir 2021. Það leyfi sem er valið, t.d. A, þýðir að allir í hópumsókninni eru að nýta sitt A-leyfi. Öflugustu umsóknirnar ganga fyrir varðandi úthlutun. Vægi umsókna margfaldast ekki þó umsækjendur í hópumsókn séu fleiri en stangafjöldi, þ.e.a.s. umsókn með sex A-umsækjendum um þrjár stangir er ekki sterkari en umsókn með þrem A-umsækjendum.

Hvar ætlar þú að veiða sumarið 2021?

Open Book