Dagskrá haustfagnaðar SVFR þann 19.október – Enginn má missa af þessu!

Haustfagnaður SVFR verður haldinn 19.október næstkomandi. Fagnaðurinn fer fram í Lágmúla 4 í Akóges salnum og opnar húsið klukkan 20:00. Eins og fram hefur komið að þá er þessi fagnaður fyrir alla þá sem hafa gaman af veiði og skemmtun, félagsmenn eður ei. Er þvi tilvalið að hengja vöðlurnar upp í geymslurnar, draga fram spariskóna og pússa þá vel fyrir kvöldið, því það verður hlegið og dansað. Veglegir vinningar verða fyrir fyndnustu og bestu veiðimynd ársins ásamt því að Happahylurinn frægi verður á sínum stað troðfullur af flottum vinningum. Margir landsþekktir grínistar, söngvarar, vísindamenn verða næstum því á svæðinu í boði Karls Örvarssonar. Eggert Skúlason fer yfir nýjustu þáttaröð sína af Sporðarköstum og margt, margt fleira.

Dagskráin er svohljóðandi:

 

  • Formaður SVFR setur hátíðina og kynnir til leiks hátíðarstjórann Karl Örvarsson söngvara og margbreytilegan persónuleika (lesist eftirherma).

 

  • Átroðningur kvennadeildar SVFR – rándýrt atriði.

 

  • Karl Örvarsson og vinur kynnir til leiks fyndnustu veiðimyndir sumarsins og þá bestu. Einnig verður farið út í hvernig á að taka mynd af laxi… og hvernig á ekki að taka mynd af laxi.

 

  • Helstu tölur úr ám SVFR verða skoðaðar og veiðitímabilið gert upp.

 

  • Verðlaunaafhending fyrir fyndnustu mynd ársins og þá bestu.

 

  • Hinn landskunni fréttamaður Eggert Skúlason fer yfir nýjustu þáttaröð af Sporðaköstum og segir skemmtilegar sögur við gerð hennar.

 

  • Farið verður á léttan hátt með hjálp fróðasta manns Íslands um erfðamengi íslenska laxins.

 

  • Happahylurinn.

 

  • Ball fram á rauða nótt..

 

 

Takið föstudagskvöldið 19.október frá núna ef þið eruð ekki búin að því!

Sendið myndir af ykkar bestu og fyndustu veiðimynd af liðnu sumri á [email protected] og þið eruð komin í leikinn!