Fjölmennt á vorveiðidögum ungmennastarfsins

Það var gleði og tilhlökkun í loftinu þegar vorveiðidagar ungmennastarfsins fóru fram í Korpu og Leirvogsá 25. apríl og 2. og 3. maí.

Viðtökurnar voru hreint út sagt frábærar, yfir 50 skráningar bárust á innan við sólarhring og hátt í 40 börn fengu úthlutað tveggja klukkustunda vakt hvert um sig. Samkvæmt reglum var veitt á eina stöng í Korpu og tvær í Leirvogsá frá klukkan 08:00–20:00.

Þátttakendur voru á aldrinum 6–19 ára og mislangt komnir, eins og við er að búast. Á meðan sumir voru að stíga sín fyrstu skref voru aðrir komnir lengra, og ekki má gleyma þeim allra hörðustu – sjálfum veiðisjúklingunum sem alltaf eru tilbúnir þegar kallið kemur. Það er einmitt fegurðin við stangveiðina – hún tekur öllum opnum örmum. Eina sem þarf er áhugi og vilji til að stíga fyrstu skrefin. Aðstæður voru með besta móti og veðrið heilt yfir gott. Krakkarnir sýndu mikinn dugnað og eljusemi og fóru öll heim með dýrmæta reynslu í farteskinu, óháð því hvort fiski hafi verið landað eða ekki.

Næst á dagskrá eru flugukastnámskeið fyrir 10–19 ára byrjendur, sem haldin verða í samstarfi við Veiðiskólann um helgina. Námskeiðin eru sex talsins og fara fram við Rauðavatn. Fljótlega upp úr miðjum mánuðnum opnar skráning á ungmennadaga Elliðaánna en til að mæta vaxandi eftirspurn bjóðum við upp á fjóra daga í sumar, tvo í júlí og tvo í ágúst.

Ungmennastarfið gegnir mikilvægu hlutverki í að kynna yngstu félagsmönnunum fyrir stangveiði og skapa jákvæða upplifun við okkar ástkæru borgarár – Korpu, Leirvogsá og Elliðaár. Framtíðin er sannarlega björt hjá ungu kynslóðinni og við hlökkum til að fylgjast með komandi tímum. Takk fyrir þátttökuna og takk fyrir myndirnar.