Vorveiðin í Elliðaánum fer vel af stað

Veiðimaður með vænan Urriða úr Elliðaánum 1. maí 2026

Vorveiði hófst í Elliðaánum þann 1. maí og hefur farið vel af stað. Alls hafa 54 urriðar veiðst til þessa.

Elliðaárnar eru einstök náttúruperla í hjarta höfuðborgarsvæðisins. Þar mætast borg og villt náttúra á einstakan hátt, þar sem tærar ár liðast um gróið umhverfi og skapa kjöraðstæður fyrir fisk og veiðimenn. Svæðið er aðgengilegt, fallegt og hefur í áratugi verið einn af mikilvægustu útivistarstöðum landsins.

Árnar hafa sjaldan verið jafn vinsælar meðal veiðimanna og komast færri að en vilja ár hvert.

Veiðimenn með flottan urriða úr Elliðaánum í maí 2026
By Ingvi Örn Ingvason Elliðaár