Veiðistaðakynning í landi Sog Bíldsfells n.k. sunnudag!

Veiðistaðakynning verður haldin sunnudaginn 17.maí í Soginu í landi Bíldsfells. Þetta magnaða bleikju – og laxasvæði á sína mögnuðu punkta og mun Karl Lúðvíksson leiðsögumaður fara með fólk um svæðið og afhjúpa alla leyndardóma svæðisins. Þarna gefst fólki tækifæri á að læra meira um þetta margrómaða svæði sem er þó leyndardómur og óvissa fyrir marga. Farið verður yfir vaðleiðir, heitustu punktarnir sýndir og góð kynning á helstu veiðistöðum hvort sem það er fyrir silungs eða laxveiðimenn.

Mæting er klukkan 10:00 næsta sunnudagsmorgunn við veiðihús Bíldsfells og gengið með bökkum. Boðið verður upp á léttar veitingar. Þá er mælt með því að vera klædd eftir veðri. Félagsmenn og aðrir gestir eru hjartanlega velkomnir!

Skráning er á netfangið: [email protected]

Leiðarlýsing að veiðihúsi: Ef komið er frá Reykjavík er beygt til vinstri upp Grafningsveg (vegur 350) áður en komið er að brúnni yfir Sogið hjá Þrastarlundi. Að afleggjaranum að Bíldsfelli eru um 5 km. Sá afleggjari er ekinn alveg niður að á, þar sem veiðihúsið stendur

Með veiðikveðju