Veiðileiðsögn 2020 – Félagsmenn fá 5% afslátt

Þann 4. mars mun Ferðamálaskóli Íslands í annað skipti bjóða upp á nám fyrir áhugasama aðila sem vilja gerast leiðsögumenn innlendra og erlendra veiðimanna í ám og vötnum landsins. Veiðileiðsögunámið er hagnýtt nám og nýtist í senn starfandi leiðsögumönnum og áhugasömum aðilum sem hafa áhuga á að sinna slíkri leiðsögn. Námið gefur innsýn í grunnatriði og ítarlegri þætti er varða veiðileiðsagnarþjónustu. Sérfróðir leiðsögumenn kenna undirstöðuatriði stangveiða og sérfræðingar miðla fróðleik um fiskana er við sögu koma og vistfræði þeirra.
• Meðal kennsluefnis eru undirstöðuatriði er varða líffræði og lífshætti íslenskra ferskvatnsfiska. Fjallað er um árstíðabundnar göngur fiska, gönguhegðun í ferskvatni og sjó og samspil þátta er varða m.a. fæðugöngur.
• Farið er yfir þætti er varða samskipti leiðsögumanna við veiðimenn allt frá komu þeirra í veiðihús, meðan á dvöld þeirra stendur og þar til dvöl hans lýkur.
• Farið verður í tveggja daga ferð í Eystri Rangá þar sem tekin verður fyrir meðal annars kasttækni með einhendum og tvíhendum.
• Lögð er áhersla á Skyndihjálp og áfallahjálp þar sem litið er sérstaklega til þátta er tengjast hættum við ár og vötn..
• Farið er yfir handtök er varða frágang á afla eftir veiði, blóðgun og flökun á fiski. Samhliða verður farið yfir grunnþætti sem varða meðhöndlun fiska með hliðsjón af “veiða og sleppa” .
• Allir leiðbeinendur hafa áratuga reynslu sem leiðsögumenn eða vísindamenn hver á sínu sviði.
• Námið er alls 90 stundir og fer bæði fram í kennslustofu og á bökkum Eystri Rangár.
Leiðbeinendur eru:
Þröstur Elliðason, fiskeldisfræðingur – Strengir
Erlendur Steinar Friðriksson, sjávarútvegsfræðingur
Jóhannes Hinriksson, rekstrarstjóri – Ytri Rangá
Reynir Friðriksson, sjávarútvegsfræðingur
Fulltrúi frá Landsambandi veiðifélaga
Björn Rúnarsson, Vatnsdalsá.
Ólafur Vigfússon, Veiðihornið
Björn Theodórsson, fiskeldisfræðingur og leiðsögumaður
Kristinn Helgason, Landsbjörg
Sr. Bragi Skúlason, Landspítalinn

Heildarverð til félagsmanna er 199.500 kr

ATH! Flest stéttarfélög styrkja sína félagsmenn til þessa náms.

Við hvetjum þá sem hafa áhuga á þessu flotta námskeiði að hafa samband á netfangið [email protected] með nafni og kennitölu

Góða helgi