Utankjörfundar atkvæðagreiðsla hafin

Nú er hafin utankjörfundar atkvæðagreiðsla á skrifstofu SVFR og verður hún opin í dag, fimmtudag og föstudag í þessari viku og síðan á mánudag og þriðjudag í næstu viku.

Við hvetjum alla félagsmenn sem ekki sjá sér fært að mæta á aðalfund félagsins að koma við á skrifstofu og nýta sinn kosningarétt.

Fimm frambjóðendur eru í kjöri, en merkja verður við þrjá frambjóðendur til þess að kjörseðill sé gildur.

Framboð í stjórn SVFR:

Ágústa Katrín Guðmundsdóttir

Karl Lúðvíksson

Lúðvíg Brynjarsson

Ólafur Finnbogason

Ragnheiður Thorsteinsson

By admin Fréttir