Áhugaverðir tilboðsdagar í Langá
Rignt hefur eldi og brennisteini á Vesturlandi síðustu daga og eru flestar ár bólgnar af vatni, Langá er engin undantekning og hefur rennslið í henni verið tvöfalt síðustu daga. Hún er búin að hreinsa sig og er góður séns á að lenda í hörku veiði þar sem það eru engar stórrigningar í kortunum næstu daga. …