SVFR auglýsir eftir skemmtinefnd

Stangaveiðifélag Reykjavíkur auglýsir eftir skemmtinefnd til starfa í vetur. Skemmtinefnd skipuleggur og heldur utan um skemmtikvöld félagsins og kemur að skipulagi á öðrum viðburðum á vegum félagsins.

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda póst á [email protected] og lýsa yfir áhuga á að sjá um skemmtanahald félagsins.

Skemmtinefnd starfar náið með fulltrúa stjórnar SVFR þegar kemur að skipulagningu á skemmtanahaldi og fær umbun fyrir. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir samheldna hópa eða kunningja að taka að sér.

By admin Fréttir