Sumarblað Veiðimannsins er komið út!

Flekkudalsá. Aðeins til afnota fyrir leigutaka frá árinu 2013. Aðrir hafi samband við höfund.

Eftirvænting veiðimanna fyrir komandi veiðisumri vex nú með hverjum degi. Fyrstu löxunum hefur verið landað og Veiðimaðurinn er mættur á bakkann.

Sumarblað Veiðimannsins sem hefur komið út í rúmlega 80 ár er fjölbreytt að vanda. Varpað er upp svipmynd af Elliðavatni þar sem veiðimenn geta orðið fullnuma í silungsveiðifræðunum, bara ef þeir velja réttu fluguna og kasta rétt!

Veiðistaðalýsing af Flekkudalsá í Dölum er í blaðinu, sagt er frá nýrri ungmennadeild Stangaveiðisfélags Reykjavíkur og brugðið er upp svipmynd af nýjum stjórnarkonum SVFR en aldrei hafa fleiri konur setið í stjórn félagsins.

Veiðimaðurinn lærir að veiða Varmá – Þorleifslæk betur en þar er hægt að veiða allt frá apríl og fram í október. Sjóbirting, urriða, bleikju og jafnvel lax. Galdralöppin er töfrandi silungsfluga og er saga hennar sögð.

Fengsælar Sandárflugur eru einnig kynntar til leiks en veiðisumarið 2021 er fyrsta árið sem þessi dulmagnaða á er seld á almennum markaði.

Þá veitir Klaus Frimor, stórveiðimaður og leiðsögumaður, góð ráð um hvernig hægt er að bæta köstin og ná betri árangri á bakkanum. Nú er rétti tíminn til að bæta kasttæknina og undirbúa næstu veiðiferð. Veiðimaðurinn er klár í slaginn en ýmislegt fleira er á borð borið í blaðinu.

Veiðimaðurinn er nú í dreifingu til félagsmanna og áskrifenda en þeir sem geta ekki beðið ættu að skreppa í næstu veiðibúð, birgja sig upp fyrir sumarið og kippa með sér eintaki.

Eldri tímarit eru komin á vefinn okkar og þau má sjá hér.

Gleðilegt veiðisumar!

Mynd: Einar Falur Ingólfsson, frá Flekkudalsá.

By SVFR ritstjórn Fréttir