Sérstök hátíðaropnun í Elliðaánum í fyrramálið 20. júní.

Sérstök hátíðaropnun Elliðaánna verður í fyrramálið 20. júní í tilefni af 80 ára afmæli Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Heiðurinn af opnun ánna er í höndum Reykvíkings ársins 2019.

Borgarstjóri Reykjavíkur, Dagur B. Eggertsson og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir formaður borgarráðs munu í framhaldi renna fyrir lax. Laxinn er þegar genginn í árnar og má reikna með líflegri stemningu við bakkann í fyrramálið. Það verður spennandi að sjá við hvaða veiðistað í Elliðaánum fyrsti laxinn kemur upp en laxinn er sennilega sá lax sem mest er myndaður á landinu á hverju ári.

Opnunin í ár er sú 80. í sögu félagsins en félagið heldur uppá 80 ára afmæli sitt í ár. Það voru frumkvöðlar og framsýnir félagar sem stofnuðu félagið 17. maí 1939. Þeir höfðu áhyggjur af framtíð laxveiði í Elliðaánum og vildu efla stangaveiðiíþróttina á Íslandi.

Elliðaárnar eru í dag meðal bestu laxveiðiáa landsins þökk sé stofnendum félagsins og hluti af stórkostlegu útivistarsvæði Reykvíkinga. Fjölmargir ungir veiðimenn taka þar sín fyrstu köst á hverju sumri og blómstrar stangaveiðiíþróttin sem aldrei fyrr.

Í tilefni afmælisársins hefur félagið látið útbúa sérmerktan afmælisvarning; buff, húfur, fluguveski og faðm sem má nálgast á vefverslun félagins svfr.is.

By admin Fréttir