Loksins rigning í Þjórsárdalnum
Nils Folmer Jorgensen, sá frábæri veiðimaður, skrapp aðeins í Sandá í Þjórsárdal í gær.
Óhætt er að segja að skreppitúrinn hafi verið vel þess virði. Nils landaði 6 löxum, þar af einum sem mældist 101 cm!
Nils sagði okkur að mikið af fiski væri við Ósinn sem biði þess að komast upp í ána, en hann sá einnig fiska ofar í ánni.
Veðurspáin í næstu viku lofar góðu, en gert er ráð fyrir úrkomu á mánudag, þriðjudag og miðvikudag og þá má búast við að fiskur hrúgist upp í ánna.
By Hjörleifur Steinarsson
Fréttir