SVFR og Veiðifélag Reykjadalsár í Borgarfirði hafa náð samkomulagi um að sala veiðileyfa í þessa perlu verði á vegum félagsins.
Markmið samstarfsins er að efla ársvæðið til framtíðar. Meðal fyrirhugaðra aðgerða eru að draga úr veiðiálagi með minni kvóta og taka upp eingöngu fluguveiði í ánni frá og með veiðitímabilinu 2027. Jafnframt verður lögð aukin áhersla á vernd og uppbyggingu stofnsins með fiskrækt, stækkun búsvæða seiða og öðrum umbótaverkefnum. Reykjadalsá hentar afar vel til fluguveiða og má nefna að undanfarin ár hefur rúmlega helmingur aflans veiðst á flugu.
Þar sem hluti veiðileyfa fyrir komandi sumar hefur þegar verið seldur verða engar breytingar gerðar á veiðireglum á þessu tímabili. Sumarið 2026 verður því að öllum líkindum síðasta veiðitímabilið þar sem heimilt verður að veiða með maðki í ánni.
Reykjadalsá er öflug laxveiðiá sem hefur skilað að jafnaði 100–200 löxum á sumri undanfarin ár. Á síðasta veiðitímabili veiddust 143 laxar og 51 urriði á þær tvær stangir sem leyfðar eru í ánni. Tölurnar sýna vel hversu gjöful og spennandi áin getur verið fyrir veiðimenn. Helsti veiðitíminn hefur verið í ágúst og september, en áin getur farið hægar af stað þegar vatnsmagn er lítið.
„Reykjadalsá er gífurlega spennandi viðbót við framboð SVFR og fellur vel að þeirri sýn okkar að bjóða félagsmönnum fjölbreytt og vönduð veiðisvæði um allt land. Um leið er sérstaklega ánægjulegt að taka þátt í verkefni þar sem áhersla er lögð á vernd, uppbyggingu stofnsins og sjálfbæra nýtingu til framtíðar,“ segir Ingimundur Bergsson, framkvæmdastjóri SVFR.
Veiðileyfi eru seld í stökum dögum út júlí. Þá er veitt frá kl. 16 á komudegi til kl. 13.00 daginn eftir. Frá 1. ágúst er áin hins vegar seld í tveggja daga hollum.
Við ána stendur glæsilegt veiðihús sem nýlega var tekið í notkun. Húsið er búið öllum helstu þægindum, þar á meðal heitum potti, og er staðsett í næsta nágrenni við Reykholt. Þar fer vel um fjölskyldur og smærri veiðihópar, enda eru þrjú fullbúin svefnherbergi í húsinu með sér snyrtingu og sturtu.
Við erum fullviss um að félagsmenn taki þessari viðbót fagnandi, kynni sér framboð lausra veiðileyfa í vefsölu félagsins og bjóðum Reykjadalsá hjartanlega velkomna í hóp veiðisvæða SVFR.