Frá 41.500 kr.
Reykjadalsá í Borgarfirði
Reykjadalsá er falleg tveggja stanga laxveiðiá í Borgarfirði sem rennur um Reykholtsdal og Hálsasveit framhjá sögufrægum stöðum á borð við Reykholt og Deildartunguhver. Áin er 38 km löng, með góðu aðgengi og 32 merktum veiðistöðum.
Veiðin hefur verið stöðug undanfarin ár og veiddust 172 laxar og 51 urriði sumarið 2025. Veitt er á tvær stangir og leyfilegt agn er fluga eða maðkur. Hirða má tvo laxa á dag á stöng en öllum laxi umfram það skal sleppt.
Frá 20. júní til 1. ágúst eru seldar tvær stangir í einn dag, en frá 1. ágúst til 30. september eru seldar tvær stangir í tvo daga.
Vesturland
Veiðitímabil: 20.06 - 30.09
Stangir: 2 - seldar saman
Agn: Fluga og maðkur
Kvóti: 2 laxar á dag á stöng
6 manns í sjálfsmennsku