Örfréttir af svæðum SVFR

Jón Stefán Hannesson með úrillann hausthæng úr Elliðaánum / Mynd - Ísak Vilhjálmsson

Elliðaár
72 laxar veiddust í vikunni í Elliðaánum og eru alls 918 komnir á land sem er frábær veiði. Tímabilinu lýkur á sunnudaginn.

Flekkudalsá
Vikuveiðin var 6 laxar og slatti af sjóbirting, alls hafa verið 146 laxar skráðir í Flekkunni. Eins og Elliðaárnar lokar áin á sunnudaginn.

Gljúfurá
Vikuveiðin var 18 laxar ásamt slatta af  vænum sjóbirting. það eru komnir 148 laxar á land. September er oftar en ekki aflahæsti mánuðurinn í ánni og á áin mikið inni því það er töluvert af fiski á svæðinu.  Við eigum eitt holl eftir í Gljúfurá, það má sjá hér.

Haukadalsá
Vikuveiðin var 26 laxar og hafa alls 390 laxar veiðst í ár.  Haukan er uppseld í ár.

Korpa/Úlfarsá
Vikuveiðin var 15 laxar á stangirnar tvær. Alls hafa 235 laxar veiðst sem er besta veiðin síðan 2018 en þá veiddust 237 laxar.    Korpan er uppseld í ár.

Langá
Vikuveiðin í Langá var 50 laxar og hafa alls hafa veiðst 1146 laxar og er ekki ólíklegt að lokatalan verði yfir 1300 laxa . Við eigum örfáar stangir eftir og má sjá þær hér.

Valdimar Hilmarsson leiðsögumaður með 83cm hrygnu úr Langá

Langá – Efsta svæðið
Fimm laxar veiddust í vikunni á efsta svæðinu í Langá og er staður E-111 lang aflahæstur. Uppselt er á efsta svæðið.

Laugardalsá
Vikuveiðin í Laugardalsá var 8 laxar og slatti af silungum. Í vefsölunni okkar er að finna tvö laus holl í Laugardalsá í september sem sjá má HÉR.

Leirvogsá
Vikuveiðin var 22 laxar og 8 sjóbirtingar á stangirnar tvær og hafa alls 247 laxar veiðst í ár. Núna er eingöngu veitt á flugu á svæðinu og öllum laxi sleppt.  Leirvogsá er uppseld.

Falleg hrygna úr Leirvogsá sem féll fyrir Green Butt / Mynd Maros Zatko

Miðá
Vikuveiðin í Miðá var 9 laxar á stangirnar þrjár og hafa alls 186 laxar veiðst þar í ár. Við eigum ennþá laus holl í september í Miðá og má sjá þau hér.

Sandá
Vikuveiðin í Sandá var 15 laxar og hafa veiðst 366 laxar. Það eru tvö holl laust í september og má sjá þau hér.

Þverá í Haukadal
Tveir laxar veiddust í vikunni og eru alls 36 laxar skráðir í bók en skráning hefur verið afar léleg.  Þverá er uppseld í ár.

Dynjandi í Brúará / Mynd Maros Zatko

Brúará í landi Sels
Sjóbirtingurinn er mættur og er hann í Dynjanda, Felgunni og fyrir neðan brú. Menn sem eiga leið í Brúará á næstu dö0gum ættu að einbeita sér að laxinum.    Laus leyfi er að finna í HÉR.

Flókadalsá í Fljótum
Rólegt hefur verið í Flókadalsá undanfarið en það er fiskur á svæðinu, hann er bara tregur til töku.  Flókadalsá lokar um helgina.

Gufudalsá
Veiðisumrinu er lokið í Gufudalsá, við munum birta lokatölur þegar við fáum þær í hendurnar en ágæt veiði var í sumar. 76 bleikjur og 1 lax voru færð til bókar í AnglingIQ appinu en talsvert meira var skráð í bókina sem var í húsinu.

By Árni Kristinn Skúlason Fréttir