Nýgenginn lax enn að veiðast í Sandá – laus holl í september

Maður með stóran lax úr Sandá

Jón Tómas með 82 cm lax úr Steinabreiðu í Sandá í Þistilfirði

Það er búið að vera mikið líf í Sandá í Þistilfirði í ágúst og veiðimenn sem nýlega voru við veiðar urðu varir við mikið af laxi um alla á, strax á fyrstu vakt. Tóku þeir sérstaklega eftir því hve mikið af nýlegum laxi var að sjá og greinlegt að lax er enn að ganga inn í ána.

Það sást greinlega á seinustu vaktinni þegar þrír lúsugir laxar komu á land. Þeir veiddust bæði á Steinabreiðu og alveg upp í Fossbrot, sem undirstrikar hversu vel laxinn er búinn að dreifa sér.

Veiðimaður með lax úr Sandá í Þistilfirði
Veiðimaður með 70 cm lax úr Sandá í Þistilfirði

Hollið landaði 14 löxum og missti 7, þar á meðal slapp einn vænn "Þistilfjarðar-höfðingi" sem tók í Verskálahyl en hafði betur að lokum eftir harða baráttu.

Hópurinn hafði orð á því hve fjölbreytt og skemmtileg veiðisvæði Sandá býður upp á og að hvert svæði býr yfir góðum veiðistöðum Aðstaðan við ána er jafnframt til fyrirmyndar og veiðihúsið hefur fengið mikið lof þeirra sem hafa heimsótt svæðið í sumar.

SVFR þakkar Jóni Tómasi fyrir myndirnar og góða frásögn af upplifun þeirra félaga.

Flott september holl á lausu

Nú fer hver að verða síðastur að upplifa töfra Sandár í Þistilfirði þetta sumarið. Miðað við hvernig veiðin og laxagengdin hefur verið í ágúst lofar september afar góðu, þegar haustlitirnir fara að setja svip sinn á Þistilfjörð, stórlaxarnir komnir á stjá og enn getur verið von á nýgengnum laxi.

Eigum tvö laus holl í lok september og ættu laxveiðimenn og konur að íhuga vandlega að gera sér ferð á Norðausturlandið og upplifa þessa mögnuðu á í allri sinni dýrð.

  • 13. - 16. september
  • 16. - 19. september

September í Sandá getur verið einstakur tími; hauststemningin, stórir og sterkir laxar og kyrrðin í stórbrotinni náttúru Þistilfjarðar gera ferðina að upplifun sem seint gleymist.

By Ingvi Örn Ingvason Fréttir Sandá