Ný stjórn kvennanefndar

Nýkjörin stjórn kvennanefndar SVFR tók við keflinu í árlegri veiðiferð í Langá á Mýrum um mánaðamótin ágúst/september.

Lilja Bjarnadóttir og María Hrönn Magnúsdóttir hætta í stjórn og viljum við þakka þeim fyrir vel unnin störf. Í þeirra stað koma Þóra Sigrún Hjaltadóttir og Rún Knútsdóttir. Sæunn Björk Þorkelsdóttir tekur við sem formaður.

Við hvetjum áhugasama til að fylgja kvennanefndinni á bæði Facebook og Instagram, til að missa ekki af fjörinu, en framundan er skemmtilegur og spennandi vetur á tíunda starfsári nefndarinnar.

Kvennanefnd SVFR á Facebook
Kvennanefnd SVFR á Instagram

Meðfylgjandi mynd var tekin af nýju stjórninni við Langárbyrgi, talið frá vinstri: Helga Gísladóttir, Sæunn Björk Þorkelsdóttir, Rún Knútsdóttir og Þóra Sigrún Hjaltadóttir.

By SVFR ritstjórn Fréttir