Nördaveislur Stangó halda áfram af krafti og næst á dagskrá er kvöld tileinkað nettum laxveiðiám. Viðburðurinn fer fram miðvikudagskvöldið 19. febrúar á sportbarnum Ölver í Glæsibæ. Húsið opnar klukkan 19:00 og dagskráin hefst klukkan 20:00 og stendur til 22:15.
Spennandi fræðsla og fjör – Nettar laxveiðiár
Kvöldið hefst á Skólabekknum þar sem Elías Pétur Viðfjörð Þórarinsson fjallar um hvernig nálgast skuli lax í nettum laxveiðiám. Hann mun sérstaklega fjalla um veiði sem nýst getur í Elliðaánum og Korpu og gefa innsýn í aðferðir sem geta skilað betri árangri á slíkum veiðisvæðum.
Að lokinni fræðslunni tekur við umræða með Elíasi Pétri þar sem gestir geta spurt spurninga og fengið gagnleg ráð um veiði í minni ám. Spurningaleikurinn Makkerinn verður á sínum stað með veglegum vinningi. Kryddsilungurinn mun kryfja málin á léttu nótunum og kvöldinu lýkur svo með glæsilegu happdrætti sem enginn veiðimaður vill missa af.
Endilega taktu þátt!
Nördaveislur Stangó eru fyrir alla sem hafa áhuga á stangveiði, hvort sem það eru byrjendur eða sérfræðingar í veiði. Mættu og njóttu kvöldsins í frábærum félagsskap!