Kæru félagsmenn.
Vegna COVID19 þá höfum við lokað ótímabundið fyrir heimsóknir á skrifstofuna. Sú ákvörðun verður skoðuð vikulega og þið upplýstir þegar breyting verður þar á.
Þetta gerum við til að tryggja heilsu og öryggi starfsfólks og félagsmanna eins og hægt er. Eftir sem áður erum við við símann og svörum tölvupósti. Vinsamlegast hringið í okkur í síma 568 6050 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected]. Við svörum eins fljótt og auðið er.
Takk fyrir skilninginn
Skrifstofa SVFR