Laxinn mættur í Elliðaár og Langá!

Sá silfraði er byrjaður að skríða upp í árnar á Vesturlandi og fyrir nokkrum dögum sáust fallegir laxar í Langá, nánar tiltekið í veiðistaðnum Krókódíl. Einnig hefur sést til laxa í Elliðaánum, þónokkrir laxar hafa sést á Breiðunni. Teljarinn er komin í gang í Elliðaánum og er baratímaspursmál hvenær fyrsti laxinn fari í gegnum hann!

Elliðaárnar opna 20. júní og Langá þann 19. Það verður svo sannarlega gaman að sjá hvað fyrstu dagarnir skila!

Ertu búin/n að kaupa laxveiðileyfi fyrir sumarið? Endilega kíkið á vefsöluna okkar hér.

By SVFR ritstjórn Fréttir