Mikið líf hefur verið í Langá síðustu daga þar sem laxagöngur hafa tekið verulegan kipp og aðstæður í ánni eru með besta móti. Heildaraflinn er nú kominn yfir 100 laxa og síðustu daga hafa veiðst á bilinu 10–20 laxar á dag. Þann 8. júlí veiddust 20 laxar, sem er besti veiðidagur sumarsins hingað til.
Laxagöngur hafa stigmagnast jafnt og þétt undanfarnar vikur. Þann 11. júlí höfðu 570 laxar farið í gegnum teljarann í Skuggafossi. Áætlað er að álíka margir laxar fari upp fossinn sjálfan.
Þrír laxar yfir 75 cm veiddust sama dag.
Tveggja ára laxinn hefur einnig látið vel að sér kveða. Í liðinni viku veiddist glæsilegur 82 cm lax í Hreimsáskvörn og tveimur dögum síður komu þrír laxar á land sem voru allar á bilinu 75–80 cm. Var þeim öllum vitaskuld sleppt aftur í ána.
Einn laxinn bauð upp á ógleymanlega viðureign þar sem veiðimenn þurftu að elta hann rúma 600 metra niður ána, frá Réttarhyl og alla leið niður á Kríubreiðu, áður en loks tókst að koma honum í háfinn. Í lok dagsins misstist svo stærðarinnar hængur í löndun eftir magnaða baráttu, en bæði veiðimenn og leiðsögumaður áætla að hann hafi verið um 90 cm langur.
Stefnir í afar gott veiðisumar
Vatnsstaðan er með besta móti og laxinn hefur dreift sér víða um ána. Veiðimenn eiga því kost á að nýta fjölbreytta og glæsilega veiðistaði sem hafa gert Langá að einni vinsælustu laxveiðiá landsins.
Það er því óhætt að segja að veiðisumarið í Langá sé komið á fullt skrið og horfur fyrir komandi vikur afar bjartar. Enn eru tvær stangir lausar dagana 18.–21. júlí og einnig eru laus veiðileyfi í boði dagana 21.–24. júlí.
Þeir sem vilja upplifa fyrsta flokks laxveiði á Vesturlandi ættu því ekki að bíða of lengi með að tryggja sér stöng.