Jólagleði SVFR næstkomandi föstudag 7. desember

Jólagleði í dalnum verður haldin 7. desember næstkomandi í húsakynnum SVFR klukkan 20:00. Farið verður um víðan völl þetta kvöld og verður meðal annars ný skemmtinefnd kynnt til leiks. Þetta er kjörið tækifæri fyrir veiðimenn að koma saman og gera sér glaðan dag fyrir jólahátíðina.

  • Ný skemmtinefnd kynnt til sögunnar
  • Ólafur Finnbogason fer yfir stöðuna í Bíldsfelli
  • Nýjasta ársvæði félagsins, Laugardalsá, kynnt fyrir félagsmönnum
  • Úthlutunarvefurinn kynntur
  • Vinsælustu veiðibloggarar landsins sýna myndir og segja sögur frá liðnu sumri
  • Jólagjafir veiðimannsins eru veiðibækur af ýmsum stærðum og gerðum
  • Hinn geðþekki veiðimaður Sigþór Steinn Ólason les upp framlag sitt í bókinni Undir Sumarhimni
  • Boðið verður upp á smakk úr Stóru Villibráðarbókinni
  • Happahylurinn verður að sjálfsögðu á sínum stað
By admin Fréttir