Haustfagnaður SVFR

Þá er haustið er komið og veiðisumarið að baki. Því er kominn tími til að hittast, rifja upp góðar veiðisögur og skála fyrir frábæru veiðisumri.

Fögnuðurinn fer fram í veislusal Þróttar í Laugardal fimmtudaginn 15. október. Húsið opnar kl. 20:00 og við hvetjum félagsmenn, og veiðiáhugafólk, til að mæta og eiga skemmtilega kvöldstund saman.

🎤 Jógvan Hansen – skemmtikraftur, tónlistarmaður, veiðimaður og vitringur sér um veislustjórn og hver veit nema hann grípi í gítarinn

🧠 Veiði-pub quiz með veglegum vinningum.

🏆 Viðurkenningar fyrir stærstu laxa tímabilsins.

🍽️ Léttar veitingar og gleðistund á barnum

Ókeypis aðgangur og allir velkomnir – félagsmenn jafnt sem aðrir veiðimenn.

Mætum, skálum fyrir sumrinu og njótum kvöldsins saman!

Hlökkum til að sjá þig!

Með veiðikveðju,
SVFR

By Ingvi Örn Ingvason Fréttir