Við eigum laus þrjú samliggjandi holl í Haukadalsá, tvö tveggja daga og eitt þriggja daga holl, og höfum ákveðið að bjóða félagsmönnum að kaupa þessa daga í sjálfsmennsku. Um er að ræða blönduð holl þannig að hægt er að kaupa stakar stangir. Mikið af fiski er í ánni þessa dagana, flott vatn og veiði búin að vera mjög góð. Þetta er því tilvalið tækifæri til að kynnast Haukadalsá á besta tíma á frábæru verði!
Hollin sem um ræðir eru:
1.-3. ágúst – 5 stangir
3.-5. ágúst – 5 stangir
5.-8. ágúst – 5 stangir
Tilboð á stöng á dag er kr. 135.000.- auk þess sem greiða þarf eitt 20.000 kr. þrifagjald fyrir hverja stöng/herbergi og eru uppábúin rúm innifalin í því.
Nánari upplýsingar um Haukadalsá má finna á svfr.is/hauk
HÉR er hægt er að kaupa stangirnar í vefsölunni okkar.
Ef einhverjari frekari spurningar vakna er best að hafa samband við skrifstofuna á [email protected] eða í síma 568-6050.
Með kveðju,
SVFR