Frá 68 ÞÚS.

Haukadalsá

Haukadalsá hefur verið kölluð hin fullkomna fluguveiðiá. Áin er um 7,5 km löng en þó með um 40 merkta veiðistaði þannig að hér tekur hver veiðistaðurinn við af öðrum.

Í Haukadalsá finnur þú langar stórgrýttar breiður með jöfnu rennsli, straumharða strengi og allt þar á milli. Áin er kjörin fyrir flotlínu og smáar flugur og gárubragðið. Aðgengi að ánni er auðvelt og sum svæðin í göngufæri frá húsinu. Í Haukunni eru fimm stangir sem skipta með sér jafn mörgum veiðisvæðum. Kvóti er tveir laxar á vakt og eftir það má veiða og sleppa. Skylt er að sleppa öllum laxi yfir 70 cm. Enginn kvóti er á silungsveiði.

Vesturland, Haukadalur
Veiðitímabil: 20.06 - 19.09
Stangir: 5 - seldar saman
Agn: fluga
Kvóti: 2 á vakt undir 70 cm
10 manns í sjálfsmennsku og þjónustu
Bóka núna

Gisting

10 manns í bæði fullri þjónustu og í sjálfsmennsku. Skylda að kaupa þrif í sjálfsmennsku.

Tímabil

Frá 20. júní til 19. september.

Veiðin

Lax, 5 stangir, eingöngu fluga með flugustöng. Kvóti er tveir fiskar á vakt undir 70 cm.

Hentar

Byrjendum sem lengra komnum.

Innritun gesta

Gestir geta innritað sig hér, innritun gesta, áður en þeir mæta í hús og sparað þannig tíma og fyrirhöfn við komu.

Haukadalsá
Veiðihús - hafa samband

sjálfsmennska

Umsjón: +354 568 6050

Veiðihús - hafa samband

Full þjónusta 3. júlí - 1. sept

+354 791 5800

Veiðihúsastjóri tekur við fyrirspurnum vegna fyrirkomulags í húsi eða upplýsingum um fæðuóþol eða ofnæmi.

Veiðisvæðið - Veiðin

Haukadalsá er frábær laxveiðiá sem hentar fluguveiði einstaklega vel. Fimm stangir eru leyfðar í ánni og nóg pláss fyrir hverja stöng. Áin er 7,5 km löng með 40 merkta veiðistaði.

Bestu veiðistaðirnir eru Eggert, Gálgi, Hornið, Lalli og Systrasetur. Gott er að hafa í huga að fara varlega að veiðistöðum þar sem laxinn liggur oft nær en mann grunar. Mælt er með að byrja á litlum flugum og vinna sig upp en smáflugur og örgárutúpur eru mjög öflugar í Haukadalsá.

 

Veiðihús

Veiðihúsið, sem staðsett er á árbakkanum, er afar notalegt og vel útbúið. Það er með fimm tveggja manna herbergjum sem hvert um sig hefur sér baðherbergi með sturtuaðstöðu. Til viðbótar er auka sturta, saunaklefi og heitur pottur.

Full þjónusta er í húsinu frá 30. júní til 1. september. Frá opnun til 30. júní og frá 1. sept og út veiðitímann er sjálfsmennska, þ.e. uppábúin rúm og þrif á herbergjum á skiptidögum.

Vinsamlegast athugið að í sjálfsmennskunni er þrifagjald að upphæð 70.000 kr. Innfalið í því eru almenn þrif og uppábúin rúm, tvö per stöng. SVFR sendir út reiking fyrir þrifum.

á staðnum / til athugunar

Gisting fyrir 10 manns í þjónustu 30/06-01/09 og sjálfsmennsku utan þess tíma

Þráðlaust net tengt ljósleiðara

Sjónvarp

Gufubað.

Heitur pottur.

Góð vöðlugeymsla.

Gæludýrð eru ekki leyfð.

Fólksbílafært að veiðihúsinu.

Þrifagjald í sjálfsmennsku 70.000 kr. Innifalið almenn þrif og uppábúin rúm.

Gagnlegar upplýsingar


Haukadalsá
Veiði hefst:20. júní
Veiði lýkur:19. september
Fjöldi stanga:5 - seldar saman
Veiðifyrirkomulag:Tveggja (2) eða þriggja (3) daga holl frá hádegi til hádegis
Veiðitími I20.06-13.08
Morgunvakt:07:00-13:00
Eftirmiðdagsvakt:16:00-22:00
Veiðitími II14.08 - 19.09
Morgunvakt:07:00-13:00
Eftirmiðdagsvakt:15:00-21:00
Mæting, staður:Veiðihús
Mæting, tími:Klukkustund fyrir vakt
Vinsælar flugur:Frances, Sunray Shadow, Haugur, Silver Sheep, Bismó og Green Butt

Leiðsögn


Leiðsögumenn SVFR eru veiðimenn með mikla og langa veiðireynslu og eru valdir af kostgæfni. Með leiðsögn verður veiðin markvissari, tíminn nýtist betur, og oftar en ekki ánægjulegri. Leiðsögumenn okkar upplýsa veiðimenn um bestu veiðistaðina í ánni, búnaðinn og veiðitækni.

  Markvissari veiði

  Fagleg ráðgjöf

Veiðireglur


Almennar

Vinsamlegast kynnið ykkur veiðireglurnar og virðið þær. Brot á veiðireglum varða fyrirvaralausum brottrekstri úr ánni, upptöku afla og veiðafæra ásamt öðrum viðurlögum eftir því sem við á.

Gangið vel um veiðisvæðið, valdið ekki jarðraski og hirðið allt rusl. Sýnið náttúrunni virðingu og keyrið ekki utanvega. Allan afla ber að skrá í veiðibók.

Sjá einnig almennar veiðireglur SVFR

LaxTímabil: 20.06 - 19.09
Leyfilegt agn: Fluga
Eingöngu leyfilegt að veiða með flugustöng.
2 laxar á vakt undir 70cm

   Þrifagjald


Þrif á veiðihúsinu eru ekki innfalin í stangarverðinu á sjálfsmennskutímabilinu og ber veiðimönnum að kaupa þá þjónustu. Innifalið eru almenn þrif og uppábúin rúm.

Veiðimenn sjá um að þrífa grill, klára uppvask, raða inn í skápa og skúffur ásamt því að sinna almennum frágangi.

Ætlast er til að veiðimenn gangi frá öllu rusli og taki það með sér við brottför.

Athugið! SVFR áskilur sér rétt til að rukka aukalega fyrir þrif ef frágangur á veiðihúsinu er ekki sem skyldi.

Þrif í sjálfsmennsku - umsjón

Ragnheiður

+354 894 7868

Hollið Tíu veiðimenn í húsi, alls 80.000 kr.

Innifalið eru almenn þrif og uppábúin rúm, tvö per stöng. SVFR sendir út reiking fyrir þrifum.