Gljúfurá bætist við endurbókunarsvæði félagsins

Stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur hefur ákveðið að bæta Gljúfurá í Borgarfirði í hóp þeirra ársvæða sem falla undir endurbókun.

Þeir sem veiddu í Gljúfurá í sumar fá því tækifæri til að bóka sömu daga að nýju fyrir tímabilið 2027. Tölvupóstur verður sendur á viðkomandi veiðimenn með frekari upplýsingum.

  • Hér að neðan er hægt að staðfesta að óskað sé eftir sömu veiðidögum á ný eða afþakka þá.
  • Athugið að félagsaðild er forsenda endurbókunarrétts.
  • Þau holl sem ekki verða endurbókuð fara í úthlutun í desember.
By Eva María Grétarsdóttir Fréttir