Þétt setinn fundur um framtíð Elliðaánna

Flokkarnir sammála um mikilvægi þess að vernda náttúruna og lífríki á svæðinu.

Mikil þátttaka var á opnum fundi um framtíð Elliðaánna sem Stangaveiðifélag Reykjavíkur boðaði til á kaffihúsinu Elliða í Elliðaárdal. Fundurinn var haldin fyrir fullum sal gesta auk þess sem fjöldi áhugasamra fylgdust með á streymi. Hægt er að horfa á upptöku frá fundinum á heimasíðu og You Tube-rás SVFR.

Fundurinn var haldinn í ljósi aukinnar umræðu um framkvæmdir og uppbyggingu á áhrifasvæði Elliðaánna og mikilvægi þess að tryggja raunverulega vernd þessa einstaka náttúru- og útivistarsvæðis.

Áherslan verði lögð á verndun Elliðaánna og lífríkis á svæðinu

Ragnheiður Thorsteinsson, formaður SVFR, opnaði fundinn og kynnti ályktun aðalfundar SVFR um verndun Elliðaánna. Í máli hennar kom fram að Elliðaárnar væru meðal verðmætustu náttúruperla höfuðborgarinnar og að mikilvægt væri að allar ákvarðanir um uppbyggingu og skipulag á svæðinu byggðu á skýrri sýn um verndun lífríkis og náttúru.

Fulltrúar frá öllum framboðum til borgarstjórnar í Reykjavík, að Sósíalistum undanskildum, mættu á fundinn og tóku þátt í umræðum, sem undirstrikar mikilvægi málefnisins í komandi borgarstjórnarkosningum.

Líflegar pallborðsumræður

Pallborðsumræður stóðu yfir í rúman eina og hálfa klukkustund og tóku frambjóðendur fyrir spurningum frá fundarstjóra ásamt því að taka við spurningum frá áhorfendum í sal. Í umræðunum kom skýrt fram að öll framboð voru sammála um að gæta þurfi að náttúru og lífríki Elliðaánna í framtíðar deiliskipulögum og framkvæmdum í Elliðaárdal.

Mikilvægt samtal um framtíð svæðisins

Einnig kom fram sameiginleg afstaða um að Elliðaárdalurinn ætti áfram að vera opinn almenningi og aðgengilegur, en að slíkt mætti ekki gerast á kostnað viðkvæms lífríkis svæðisins. Öll framboð voru þá sammála um að skipulögð ferðaþjónusta ætti ekki erindi í Elliðaárdalinn þó ferðamenn væri vitaskuld velkomnir að skoða það einstaka náttúrusvæði sem Elliðaárdalurinn er.

Þau framboð sem gripu hvað mest í hljóðnemann voru fulltrúar þeirra flokka sem setið hafa í borgarstjórn undanfarin ár. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins og fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna og formaður umhverfis- og skipulagsráðs, og Alexandra Briem, sitjandi oddviti Pírata hafa komið að mörgum ákvörðum sem snúa að Elliðaárdalnum og koma til með að snúa að dalnum og var því margar spurning sem bornar voru upp beint til þeirra og hvaða þeirra flokkar hafa gert í þessum málum. Má þar nefna fjölgun göngu brúa yfir Elliðaánna og framkvæmdum vegna Borgarlínu.

Fundinum var einnig streymt beint á YouTube-rás SVFR, sem gerði enn fleiri áhugasömum kleift að fylgjast með umræðunum. Hægt er að horfa á upptöku frá fundinum hér

Stangaveiðifélag Reykjavíkur þakkar öllum frambjóðendum fyrir þátttökuna og þeim fjölmörgu sem mættu eða fylgdust með streymi. Ljóst er að málefni Elliðaánna skipta marga miklu máli og að mikilvægt er að halda áfram opnu samtali um framtíð þessa einstaka svæðis.