Flugukastnámskeið að hefjast!

Stangaveiðimenn og konur!

Námskeið í fluguköstum hefst sunnudaginn 10. mars í T.B.R. húsinu, Gnoðavogi 1, kl. 20.00.

Kennt verður 10.,17., 24. og 31. mars. Námskeiðið stendur yfir þessi fjögur sunnudagskvöld. Við leggjum til stangir.

Skráning á staðnum gegn greiðslu og við tökum greiðslukort.

Verð kr. 18.000.- en 16.000.- til félagsmanna.

Mætum tímanlega og munið eftir inniskóm.

Nánari upplýsingar í síma 894-2866

K.K.R, SVFR og SVH.

By admin Fréttir