Flókadalsá í Fljótum

Það er búinn að vera frábær veiði í Flókadalsá í Fljótum þetta sumarið. Um 750 sjóbleikjur voru bókaðir í bókina nú um verslunarmannahelgina og virðist ekkert lát vera á veiðinni.

Veiðimaður sem við heyrðum í fékk nóg eftir 3ja tíma veiði, hafði náð kvótanum og var orðinn þreyttur á því að landa. Vatnið hreinlega kraumaði af fiski og þeir eru rígvænir, sagði hann.

Við eigum eitt laust holl í ágúst og svo er nokkuð laust í september og bendum við áhugasömum á vefsöluna hjá okkur HÉR.

By admin Fréttir