Félagsmenn SVFR fá 10 þúsund króna gjafabréf

Allir félagsmenn SVFR fá 10.000 króna gjafabréf til kaupa á veiðileyfum í vefverslun SVFR samkvæmt ákvörðun stjórnar félagsins. Gjafabréfið er hægt að nýta til kaupa á veiðileyfum á öllum ársvæðum félagsins í sumar að frátöldum Elliðaánum, Alviðru og Flókadalsá. Þá hafa inntökugjöld fyrir nýja félagsmenn verið felld niður tímabundið og því geta nýir félagar bæst í hópinn án þess að greiða sérstaklega fyrir inngönguna. Eingöngu er greitt árgjald, sem er fljótt að borga sig þar sem félagar m.a. greiða 20% lægra verð af leyfum en utanfélagsmenn. Við skorum á alla félagsmenn að hvetja vini og veiðifélaga til inngöngu, enda er félagið þeim mun öflugra sem félagsmenn eru fleiri

Með gjafabréfinu og niðurfellingu inntökugjalda vill félagið koma til móts við félagsmenn sem hafa vafalaust ekki farið varhluta af ríkjandi samfélagsaðstæðum. Það er heldur ekkert launungarmál að ástandið kemur illa við Stangaveiðifélag Reykjavíkur en unnið er að því að koma félaginu klakklaust í gegnum storminn. Starfsmenn og stjórn er fullviss um að það takist, ekki síst ef félagsmenn leggjast á árar með félaginu. Hagsmunir félagsmanna og Stangaveiðifélagsins eru samofnir og því nýtist það sem hér hefur verið kynnt báðum vel.

Eins og áður sagði gildir gjafabréfið til kaupa á veiðileyfum í sumar en þó með því skilyrði að þau séu keypt á tímabilinu frá 10. til 25. maí. Sami tímarammi gildir um afnám inntökugjaldsins fyrir nýja meðlimi.

Til að nýta afsláttinn þurfa félagsmenn að skrá sig inn, velja sér veiðileyfi til kaups og skrá afsláttarkóðann sumar2020 í dálkinn “Afsláttarkóði” þegar karfan er skoðuð. Ef farið er beint í “greiðsluferli” eftir að veiðileyfi eru valin er ekki hægt að slá inn afsláttarkóðann!

Ekki er hægt að nýta gjafabréfið til lækkunar á veiðileyfum sem keypt eru fyrir 10. maí. Þeir sem kaupa félagsaðild í vefsölunni geta þurft að bíða uppundir 2 sólarhringa áður en félagsaðildin verður virk í vefsölunni.

Spá góðu veiðisumri

Sjálfsagt er að geta þess að sérfræðingar spá góðu veiðisumri enda gengu stórir seiðaárgangar til sjávar í fyrra. Hefur félagið haft samband við fiskifræðingana Guðna Guðbergsson og Sigurð Má Einarsson og eru þeir sammála um að laxagengd verði um eða yfir meðallagi í sumar. Þá gefa snjóalög ástæðu til bjartsýni varðandi vatnsbúskapinn sem gerði mörgum veiðimanninum grikk á síðasta sumri.

[gap]

By SVFR ritstjórn Fréttir