Opnað hefur verið fyrir endurbókanir fyrir veiðitímabilið 2027 þar sem í boði er að tryggja sömu veiðidaga á völdum ársvæðum SVFR að ári.
Boðið er upp á endurbókun á eftirtöldum ársvæðum:
- Flekkudalsá
- Haukadalsá 30.6-1.9
- Langá
- Langá – efsta svæðið
- Laxá í Aðaldal – Miðsvæðið
- Laxá í Mývatnssveit
- Laxá í Laxárdal
- Miðá í Dölum
- Sandá í Þistilfirði
Þeir sem áttu bókað veiðileyfi á tímabilinu 2026 í ofangreindum ársvæðum fá sendan tölvupóst með hlekk á endurbókunarsíðuna.
Hafir þú ekki fengið tölvupóst getur þú endurbókað þína veiðidaga á www.svfr.is/endurbokun
Einnig er hægt að skrá sig á biðlista fyrir ofangreind ársvæði. Þeir veiðidagar sem eftir standa fara í úthlutun til félagsmanna í desember.
Ársvæði sem ekki eru tilgreind hér að ofan, svo sem Elliðaár, Korpa, Leirvogsá, Gufudalsá og Gljúfurá, fara öll í úthlutun til félagsmanna.