Barna- og unglingadagar 2021

Búið er að opna fyrir umsóknir vegna barna- og unglingadaga í Elliðaánum 2021. Í ár eru 4 hálfir dagar í boði fyrir hámark 16 börn og unglinga í hverju holli, fyrstur kemur fyrstur fær. Foreldrar/forráðamenn þurfa að sækja um fyrir hönd barna sinna en skráningu lýkur 30. júní.

Veiðin er fyrir félagsmenn 18 ára og yngri sem geta veitt sjálfir. Foreldrum sem mæta er ætlað fylgja börnum sínum við veiðarnar en eingöngu til halds og trausts. Foreldrum er ekki leyfilegt að veiða. Á svæðinu verða leiðsögumenn sem leiðbeina við veiðarnar. Reyndir veiðimenn taka á móti veiðimönnum við veiðihúsið og fara yfir öryggismál, veiðireglurnar, leyndardóma Elliðaánna og hvernig á að bera sig að við laxveiðina. Hafið í huga að ekki er um barnagæslu að ræða.

Sunnudagar sem eru í boði:

11. júlí fyrir/eftir hádegi
15. ágúst fyrir/eftir hádegi

Athugið:

  • Barnið, unglingurinn þarf að vera skráður félagsmaður og hafa greitt félagsgjaldið. Félagsgjaldið er 5.400 kr. og hægt er að óska eftir félagsaðild á umsókninni hér fyrir neðan.
  • Veiðitími: Morgunvakt 08:00 - 13:00. Eftirmiðdagsvakt: 15:00 - 20:00: Mæting er 15 mín. fyrir upphaf veiðitðíma.
  • Endað er á grillveislu kl. 13:00 og kl. 20:00 við Rafstöðvarheimilið.
  • Ánni er skipt í 4 svæði (engin frísvæði) og verða allir að fylgja fyrirmælum sem gilda á þessum dögum.
  • Til að geta veitt þarf að mæta með fatnað og veiðibúnað sem ætlaður er til laxveiða. Gott er að ath. með veðurspána kvöldið áður uppá fatnaðinn að gera.
  • Mjög mikilvægt er að gleyma ekki hlífðargleraugum/sólgleraugum. Án hlífðargleraugna er ekki hægt að veiða.
  • Nauðsynlegt er að fá sér góðan morgunmat áður en lagt er af stað að heiman og gott að hafa með sér eitthvað að drekka en að veiði lokinni bíður hópsins grillveisla við veiðihúsið.

Með kærri veiðikveðju,
Fræðslunefndin

Myndataka


Mikill áhugi ríkir meðal félagsmanna og í samfélaginu almennt á félagsstarfi SVFR og er nokkuð um að fólk á vegum félagsins og stundum fjölmiðlar taki ljósmyndir, myndbönd og viðtöl á viðburðum okkar. Áhuginn er sérstaklega ríkur þegar kemur að barna- og unglingadögum. Af þeim sökum leitum við eftir samþykki forráðamanns fyrir slíkri vinnslu persónuupplýsinga. Tilgangurinn með myndatöku og birtingu myndefnis er að miðla starfi SVFR til foreldra/forráðamanna, annarra félagsmanna og samfélagsins.

Myndefni það sem tekið er af fólki á vegum SVFR er vistað á gagnaþjóni félagsins til mögulegrar birtingar á miðlum og í markaðsefni SVFR í tengslum við birtingu frétta af viðburðum á vegum félagsins. SVFR tekur ekki myndir eða myndbönd af börnum eða öðru fólki í viðkvæmum aðstæðum. SVFR aflar sérstaks samþykkis foreldra eða forráðamanna til að taka myndir eða myndbönd af barninu í þágu fréttamennsku eða fjölmiðlunar.

Skráning


Búið er að loka fyrir umsóknir um barna- og unglingadaga í Elliðaánum 2021

By SVFR ritstjórn Fréttir