Aðalfundur 2021 | framlenging rafrænna kosninga

Kæru félagsmenn

Ákveðið hefur verið að framlengja rafrænar kosninga fram til morgundagsins, fimmtudaginn 25. febrúar kl. 19:00. Sem sagt, kosningu lýkur klukkustund eftir að aðalfundurinn hefst. Við hvetjum alla félagsmenn til að nýta sér rétt sinn og kjósa.

Uppsetning, utanumhald og framkvæmd kosninganna er í höndum Advania. Í gær var tekin staða á því hversu margir hafa kosið og höfðu þá rúmlega 200 félagsmenn nýtt sér kosningaréttinn.

Kosningar í ár verða eingöngu rafrænar!

Kjörslóð: https://kosning.vottun.is/home/vote/247?lang=IS

By SVFR ritstjórn Fréttir