Vorfagnaður SVFR 2018

Það er komið að hinum árlega Vorfagnaði SVFR og ekki seinna vænna enda löngu komið sumar. Við ætlum að koma saman við höfuðstöðvar félagsins að Rafstöðvarvegi 14, laugardaginn 9. júní frá kl. 13 – 16 og vera með alveg hreint stórglæsilega dagskrá að venju.
 
Dagskráin er svohljóðandi:
  • Kl. 13 – 16 – Snarkandi pylsur á grillinu og ískalt gos fyrir gesti (meðan birgðir endast).
  • Kl. 14:00 – Kastsýning á túninu.
  • Kl. 13 – 16 – Jóhannes Sturlaugsson frá Laxfiskum sýnir gönguseiði og verður með fræðslu um lífríki Elliðaánna.
  • Kl. 15:00 – Gengið meðfram Elliðaánum í fylgd með reyndum leiðsögumönnum, farið verður yfir svæðið frá Ullarfossi og niður að sjó.
Happdrætti 
Allir sem mæta í dalinn fá happdrættismiða. Dregið verður úr þeim miðum sem verða á staðnum. Í vinning eru Veiðikort og stangir í opnun Elliðaánna.
Við hvetjum alla til að mæta með góða skapið og ekki væri verra ef allir gætu lagst á bæn og beðið um það blíðskaparveður sem við höfum verið blessuð með undanfarin þrjú ár.
 
Sjáumst mígandi hress á laugardaginn 9. júní milli kl. 13 og 16.
(Ath að dagskrá gæti breyst örlítið)
By admin Fréttir