Veiðimaðurinn, málgagn Stangaveiðifélags Reykjavíkur, er komið út og ætti að hafa borist félagsmönnum.
Blaðið er fjölbreytt að vanda. Greint er frá skýrslu stjórnar SVFR þar sem farið er skilmerkilega yfir veiðisvæði á vegum félagsins, sem og fjárhagsstöðuna. Fimmta árið í röð er eiginfjárstaða félagsins að styrkjast.
Rætt er við Ármann Kristjánsson, umsjónarmann miðsvæðisins í Laxá í Aðaldal, sem SVFR hefur nú tekið í umboðssölu. Á svæðinu er stórlaxavon og skemmtileg urriðaveiði. Veitt er á þrjár stangir og eru menn í sjálfsmennsku í flottu húsi með heitum potti.
Margir þekkja Þorbjörn Helga Þórðarson, sem oft er kenndur við Reiðu öndina. Þorbjörn er lunkinn laxveiðimaður og hnýtari. Færri vita að hann er líka ötull silungsveiðimaður með langa reynslu af því að eltast við urriða, bleikju og sjóbirting. Veiðimaðurinn tók hús á Þorbirni.
- Fiskifræðingurinn Jóhannes Guðbrandsson er í viðtali um laxveiðina í sumar. Hann spáir ágætum göngum á af eins árs laxi.
- Greint er frá stórmerkilegri rannsókn líffræðingsins Jóhannesar Sturlaugssonar á urriðanum í Laxárdal og Mývatnssveit.
Rannsóknin hefur leitt í ljós afar athyglisverðar staðreyndir um líf urriðans, dreifingu og vöxt. - Guðmundur Jörundsson fjallar um sinn uppáhaldshyl en það er Hornhylur í Sandá í Þistilfirði.
- Rætt er við fjóra flinka silungsveiðimenn um andstreymisveiði. Hvernig best sé að bera sig að, hvað beri að forðast og hver sé besta uppsetningin.
- Veiðimaðurinn fékk góð ráð hjá reyndum þurrfluguveiðimönnum sem völdu fimm traustar og þaulreyndar þurrflugur sem grunn að góðu þurrfluguboxi fyrir sumarið.
- Meistarakokkurinn Snædís Xyza Mae Jónsdóttir deildir uppáhaldsuppskriftinni sinni að grilluðum laxi með grilluðum aspas, shiitake-sveppum og smjörsósu.
Verði ykkur að góðu og gleðileg veiðisumar!
Lesa blaðið
Veiðimaðurinn 221 – Sumar 2026