Vilt þú vera í stjórn kvennastarfs SVFR?

Kvennanefnd auglýsir eftir nýjum konum í stjórn nefndarinnar.
Hlutverk nefndarkvenna er að undirbúa og skipuleggja fundi þar sem leitast skal við að efla tengsl veiðikvenna, hafa fræðslu, fyrirlestra og umræður tengdar veiði. Árleg verkefni eru t.d. undirbúningur veiðiferðar og kastnámskeið.
Áhugasömum konum er bent á að fylla út umsókn á síðu SVFR, sjá hér – https://svfr.is/umsokn-felagsstarf/ 
Við vonumst til að sem flestar sæki um og í lok júlí látum við vita hver(jar) eru svo heppnar að komast að í þetta skipti. Ný stjórn kvennanefndar tekur við í september.
Nefndir SVFR eru gífurlega mikilvægur hlekkur í félagastarfinu og sinna þróttmiklu og óeigingjörnu starfi.
Umsóknarfrestur er til 10.júlí 2021.
Stjórn Kvennanefndar SVFR
– Lilja Bjarnadóttir
– Berglind Ólafsdóttir
– María Hrönn Magnúsdóttir
– Helga Gísladóttir
By SVFR ritstjórn Fréttir